Saga

Flankastaðir eru bær á Miðnesi (Rosmhvalanesi), nú í Suðurnesjabæ en fyrrum í Miðneshreppi. Fyrir skiptingu jarðarinnar um 1900–1930 voru Flankastaðir allstór jörð á Suðurnesjamælikvarða og gætu verið landnámsjörð, þótt Landnáma tilgreini ekki landnámsmann þar.
Bærinn er þó nefndur í Landnámu — þar undir nafninu Flangastaðir. Þar segir frá því er Leiðólfur í Skógum elti Una danska Garðarsson eftir að Uni hafði fíflað Þórunni, dóttur Leiðólfs.
“
Leiðólfur náði honum við Flankastaði og börðust þeir þar.
Úr Landnámu
Nokkrir menn féllu af liði Una, en sjálfur fór hann nauðugur aftur með Leiðólfi. Barn þeirra Una og Þórunnar varð Hróar Tungugoði — mágur Gunnars á Hlíðarenda og faðir Hámundar halta, sem var mikill vígamaður að sögn Landnámu.
Heimild

Íslendinga sögur, udgivne efter gamle Haandskrifter af det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab, 1. bindi, Möller, Kaupmannahöfn, 1843, bls. 246.
Lesa meira
Um örnefni, tjörnina, naustin og gömlu lendingarnar má lesa á síðunni Örnefni og staðhættir.
