Saga
Lýsingar Magnúsar Þórarinssonar á Flankastöðum og nágrenni, úr riti frá 1960.
Túnin og tjörnin
Sunnan við Klappartún er Tjarnarkotstún. Tjarnarkot fór í eyði nálægt aldamótum [1900], en túnið lagðist undir Klöpp. Sunnan við þessi tún er allstór tjörn, sem heitir Flankastaðatjörn. Þar hefi ég séð þéttastar pöddur í vatni, að síldarátu ekki undanskilinni. Á malarkampinum milli tjarnar og sjávar sér enn fyrir rústum af gömlum sjómannabyrgjum. Það er útjaðar Flankastaðanausta; þau eru fáum föðmum sunnar. Þar stóðu tveir timburskúrar norðan við vörina, var annar (sá vestri) frá Klöpp, en hinn frá Flankastöðum (Austurbæ) [nú líklega Efri-Flankastaðir].
Fjaran og lendingar

Stórfiskur er út af Vesturbæjarfjörunni; ekki má fara grynnra fyrir hann á árabát en kirkjuna um Munkasetur. Sunnan við vörina er Vesturbæjarfjara; næst vörinni eru Vesturbæjarklappir, ekki háar en nokkuð miklar um sig, bæði fram í fjöruna og suður með kampinum. Að öðru leyti er fjaran að mestu slétt, nema syðst og vestast er hár stórgrýtisbálkur, sem kallast Vesturbæjarhausinn; lágur tangi er norðvestur úr fjörunni, varasamur þegar beygt er inn í vörina.
Hamarsund var fyrir allar lendingar norðan Bæjarskerseyrar, þegar sund þurfti að nota. Þegar lenda skyldi á Flankastöðum var, þegar inn úr sundinu kom, farið skáhallt yfir víkina norður á við að suðurósnum, sem liggur að Flankastaðavör.
Heimild

Á bókarkápunni má sjá teikningu Magnúsar Á. Árnasonar af Flankastaðavör og naustunum eins og þau voru um 1890. Hann gerði hana eftir minni sínu sem 10–12 ára drengur — þar hafði leikvöllur hans verið.
Magnús Þórarinsson: „Leiðir, lendingar og örnefni á Miðnesi — Flankastaðir”, Frá Suðurnesjum: Frásagnir frá liðinni tíð, Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík, 1960, bls. 113–118.
Meira um hverfið
Ferlir hefur tekið saman ítarlega umfjöllun um Flankastaðahverfið — bæina á torfunni, útróðra, örnefni og sögur á borð við vikivakana sem sr. Árni á Hvalsnesi lagði af.
