Samkvæmt mjög áhugaverðum pistli í Bændablaðinu um rabbabara skráði Schierbeck landlæknir tvö yrki í garðyrkjukveri sem hann gaf út 1891. Hann kallaði þau Linnaeus og Queen Victoria. Hér fylgir lýsing á þeim:

Yrkið Queen Victoria er upphaflega frá Bretlandi og kom á markað 1837, árið sem Viktoría, dóttir hertogans af Kent, varð drottning, og er yrkið kennt við hana. Yrkið er stórvaxið með græna stöngla og gefur mikla uppskeru en þykir súrt.

Linnaeus er einnig harðgert og snemmsprottið yrki. Bæði þessi yrki eru í ræktun í dag enda mun Schierbeck hafa verið duglegur við að dreifa þeim um landið. (Heimild: „Rabarbarinn rifjaður upp”, Bændablaðið, bbl.is)

Einar Helgason nefndi eina tegund til viðbótar í bókinni Hvannir frá 1926. Það er Early Red sem er oft kallaður vínrabbabari og er talinn sætari en Victoria og Linnaeus. Eins og nafnið segir er hann rauðleitur.

Rannsóknarstofnun landbúnaðarins í Korpu er með safn yrkja: fjögur íslensk, eitt grænlenskt og tólf erlend (önnur en grænlensk). Íslensk yrki eða staðbrigði hafa fengið nöfn eins og Minni-Mástunga, Svínafell, Mývetningur, Vatnskot, Bjarnadalur og Hveravellir. Eitt heitið sker sig þó úr: það kallast Ráðherrafrú og er kennt við Evu Jónsdóttur, eiginkonu Ingólfs Jónssonar, fyrrverandi landbúnaðarráðherra frá Hellu.

Dæmi um yrki nr 6 frá okkur

Yrkin sem við erum með hér á Flankastöðum

  1. Champagne
  2. Red Champagne
  3. Victoria
  4. Timperley early
  5. Holstein Bloodred
  6. Lider
  7. Livingstone
  8. Canada Red
  9. Sutton

Yrki sem við eigum eftir að greina

  1. Mjóir stönglar léttrauðir
  2. Sverir stönglar sem skipta úr rauðu í grænt, holdið er grænt
  3. Sverir stönglar sem skipta úr rauðu í grænt, holdið er rautt
  4. Stórt yrki, fallegt, smá roði neðst, holdið ljóst
  5. Mjóir stönglar, sterkur rauður litur utan, ljósrautt hold, flott tegund
  6. Dökkrauðir stönglar alla leið, grænn innan, sérlega góð tegund (Af þessari tegund höfum við nú um 15 myndarlegar plöntur, sala væntanleg í júní 2027)
  7. Mjóir stönglar dökkrauðir innan.