Rabbabari
Rabbabari á Flankastöðum
Rabbabari hefur fylgt íslenskum görðum lengi — harðger, þrjóskur og gjöfull. En hann er meira en ein planta með súra stöngla, eins og við héldum lengi sjálf.
Á ferðalagi um Bretland uppgötvuðum við að til eru yfir níutíu yrki af rabbabara — og að þau geta verið ótrúlega ólík: í lit, í bragði, í áferð. Það vakti forvitni okkar. Ef Bretar þekkja tugi yrkja, hvað þá með rabbabarann sem þegar óx hér heima á Flankastöðum?
Árið 2017 fórum við að skoða hann betur. Og viti menn — í okkar eigin görðum leyndust greinilega ólík yrki, hvert með sín einkenni. Til að ganga úr skugga um það elduðum við þau öll eftir sömu uppskrift, og munurinn var sláandi: bragðið, liturinn, og ekki síst hve mikið hvert yrki féll í sundur við suðu. Sum héldu lögun sinni, önnur urðu að mauki.

Á Beint frá býli-degi árið 2024 buðum við gestum að smakka — aðeins fjögur sýni — og þeir voru sammála.
“
Yrkið skiptir máli.
Niðurstaða smökkunar á Beint frá býli, 2024
Þetta var ekki lengur okkar tilfinning ein, heldur eitthvað sem fólk fann sjálft á tungunni. Í dag eigum við um tuttugu ólík yrki og vinnum að því að fjölga þeim til frekari prófana. Þannig er gamla íslenska þjóðsagan — að til séu aðeins tvær gerðir, sú græna og sú rauða, og að sú rauða sé betri — endanlega úr sögunni. Rabbabari er miklu fjölbreyttari en svo.
Markmið okkar er einfalt en metnaðarfullt: að auka þekkingu og skilning á rabbabarayrkjum. Því þegar eitt og sama yrkið er notað má tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleg gæði. Í dag er rabbabari oftast blandaður saman í stórar lotur við framleiðslu — útkoman verður „meðalgæði” fremur en eitthvað sérstakt og framúrskarandi. Við trúum að í fjölbreytninni felist tækifæri: að rækta, þekkja og nýta hvert yrki fyrir sína kosti.
Lesa meira
Fróðleikur
Hvað rabbabari er og hvers vegna hann unir sér svo vel hér.
Tegundir
Yrkin sem við ræktum á Flankastöðum.
Ræktun
Gróðursetning, umhirða og uppskera.
Heimild
RHS National Plant Collection of Rhubarb (Rheum × hybridum), RHS Garden Bridgewater — yfir 100 yrki, flutt norður frá Wisley árið 2022.
rhs.org.uk → National Plant Collections → Rheum
